REIT4SL05 - Rafeindatækni 2
ljóstengi, straumgrannar IC-rásir, transistor, tríakk
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Þrep: 4
Í áfanganum fær nemandinn þjálfun í að tengja transistora, mæla vinnuspennur þeirra við eðlilegar aðstæður og öðlast skilning á því hvernig hægt er að láta straumgrannar IC-rásir stýra aflfrekum tækjum með transistorum. Nemandinn kynnist möguleikum ljóstengja, bæði með transistor og tríakk, og fær þjálfun í að tengja og mæla. Hann öðlast þjálfun í að tengja og mæla vélgæslukerfi, sem er byggt upp með IC-rásum og transistorum og kynnist mismunandi búnaði til að þreifa eftir ástandi á mælistöðum kerfisins. Nemandinn öðlast sérþekkingu og skilning á þeim þáttum rafmagnsfræðinnar sem lúta að stjórnbúnaði véla og tækja og bilanaleit, einnig vinnu með örgjörva og forritun þeirra. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn fái þjálfun í uppbyggingu rafeindatækja, í lóðningu íhluta á prentplötu og að ganga frá tækjum á löglegan hátt.
Þekkingarviðmið
- notkun straumgrannra IC-rása við stýringar á aflfrekum tækjum með transistorum
- IC-rásum (MOS-fjölskyldunni)
- uppbyggingu og virkni riðstraumsmagnara
- uppbyggingu og virkni brunavarnakerfa og skynjurum sem tengjast þeim
- forritun fyrir ferjald með örgjörva
- uppbyggingu og virkni hitanema og aðferðum við tengingu þeirra
- notkun ljóstengja við stýringar á búnaði
- ljóstengjum, bæði með transistor og tríakk
- notkun og tengingu transistora
Leikniviðmið
- velja viðeigandi nema á grundvelli notkunar og mælisviðs
- tengja og mæla stafrænar rásir og hliðrænar rásir
- lóða íhluti á prentplötu
- kanna ástand framangreindra íhluta og leggja mat á hvort þeir eru í lagi eða ekki
- tengja ferjald við iðntölvur
- vinna við rásir með aðgerðamögnurum
- vinna að bilanaleit og úrbótum í stjórnbúnaði véla og tækja
Hæfnisviðmið
- gera bilanagreiningu á flóknum rafbúnaði og stjórnbúnaði
- framkvæma viðgerðir á rafeindarásum og ganga frá þeim á löglegan hátt
- meta ástand rafeindatækja
- tengja og mæla afriðilsrásir og stýrirásir með týristorum
- gera einfaldar bilanagreiningar í rafeindarásum
- vinna með örgjörva og forritun þeirra