Fara í efni

Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina

Grunnnám bygging - og mannvirkjagreina er ein önn sem alltaf er kennd á haustönn. Eftir grunnnámið geta nemendur valið um frekari nám á í byggingargreinum. Dæmi um það nám sem hægt er að fara í er húsasmíði, pípulagnir og múriðn.

Brautarlýsing

Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunnnámsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á. 

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Námið

Námið er ein önn en síðan tekur við sérhæfing í þeirri byggingagrein sem nemendur velja t.d. húsasmíði, pípulagnir eða múraraiðn.

Annarplan

Greinar

1.önn

Stærðfræði STÆF2RH05
Íþróttir HEIL1HH04
Lífsleikni LÍFS1SN02
Efnisfræði EFRÆ1BV05
Framkvæmdir FRVV1SR03
Grunnteikning GRUN1FF04
Trésmíði TRÉS1AB01-TRÉS1SL06
Einingar 30
Getum við bætt efni síðunnar?