Fara í efni

Á leið til Malaga

Átta af níu nemendum á lokaönn í hársnyrtiiðn sem fara í þessari viku til Malaga á Spáni. Anastazja …
Átta af níu nemendum á lokaönn í hársnyrtiiðn sem fara í þessari viku til Malaga á Spáni. Anastazja Dyrlaga var ekki á staðnum þegar myndin var tekin.

Nemendur á sjöttu og síðustu önn í hársnyrtiiðn í VMA og kennarar þeirra fara í næstu viku í náms- og kynnisferð til Malaga á Spáni. Ferðin er styrkt af Erasmus + styrkjaáætlun ESB.

Þetta er í fjórða skipti sem nemendur á lokaspretti námsins í hársnyrtiiðn í VMA fara í námsferð til Malaga. Fyrsta ferðin var um mánaðamótin janúar-febrúar 2020, rétt áður en kóvidfaraldurinn hófst á Íslandi. Önnur ferðin var farin 30. janúar 2022, sú þriðja í byrjun febrúar 2023 og nú er komið að fjórðu námsferðinni, þeirri fyrstu af þessum námsferðum sem er farin á haustönn.

Þeir níu nemendur sem fara með kennurunum Hörpu Birgisdóttur og Hildi Salínu Ævarsdóttur útskrifast úr náminu í desember nk. Þeir eru: Anastazja Dyrlaga, Ása Lind Aradóttir, Birkir Már Hauksson, Blær Bergþóra Freysdóttir, Halldóra Helga Sindradóttir, Nikolina Gryczewska, Sigrún Lilja Guðnadóttir, Stefanía Tara Þrastardóttir og Teodora Matilde Delgado.

Nemendurnir sem eru á leið til Malaga í næstu viku og verða þar í um hálfan mánuð eru spenntir að kynnast nýjum straumum og stefnum í faginu á Spáni og um leið að víkka út sjóndeildarhringinn.

Eins og í fyrri námsferðum til Malaga mun hópurinn m.a. kynna sér starfsemi og fá leiðsögn í Grupo Nebro, sem er einskonar akademía í hársnyrtiiðn. Einnig verður heimsóttur El Palo Instituto, ríkisrekinn verkmenntaskóli sem kennir m.a. hársnyrtiiðn. Tveir kennarar úr þessum skóla komu einmitt í heimsókn í VMA í október á sl. ári til þess að kynna sér kennsluna í VMA og skólakerfi á Íslandi almennt.