Fara í efni

Að hugsa út fyrir boxið

Samfélagsgreinakennararnir Valgerður Dögg og Hrafnhildur.
Samfélagsgreinakennararnir Valgerður Dögg og Hrafnhildur.

Það er gömul saga og ný að það getur verið gott og hollt að hugsa út fyrir boxið, eins og oft er sagt, og feta nýja slóð. Oft lætur árangurinn ekki á sér standa. Samfélagsgreinakennararnir Hrafnhildur S. Sigurgeirsdóttir og Valgerður Dögg Oddudóttir Jónsdóttir ákváðu að feta nýja slóð í kennslu í grunnáfanga í félagsfræði á haustönn 2024, sem þær meta svo að hafi skilað mjög jákvæðum árangri.

Um miðjan maí sl. vor fengu Hrafnhildur og Valgerður Erasmus styrk til þess að kynna sér skólastarf og kennsluaðferðir í skólum í Barselóna á Spáni. Þær kynntust skólastarfi í leik- og tónlistarskóla og einnig kynntu þær sér starfið í einkaskóla. Hrafnhildur segir að þó svo að ekki hafi verið um að ræða skóla á framhaldsskólastigi hafi heimsóknirnar fyllt huga þeirra af fjölda hugmynda sem væru til þess fallnar að bæta við í þeirra hugmyndabanka og í framhaldinu að prófa að nýta nokkrar þeirra í þróun áfanga í VMA. Þessi hugmyndabanki hafi síðan áfram mallað í huga þeirra síðasta sumar og við upphaf haustannar hafi þær ákveðið að feta nýja slóð m.t.t. ýmissa hugmynda sem þær hafi fengið út frá skólaheimsóknum sínum í Barselóna. Þær smelltu ýmsum nýjum hugmyndum inn í kennsluna í félagsfræðiáfanga sem í voru um fjörutíu nemendur. Hópnum var skipt á þær Hrafnhildi og Valgerði en hugmyndafræðin var samræmd í kennslu beggja hópa.

Hrafnhildur segir að í raun hafi verið um töluverða breytingu að ræða í kennsluaðferðum. Viðfangsefni hafi verið þau sömu og áður var lagt upp með út frá námsskrá en nálgunin önnur. Stærsta breytingin segir Hrafnhildur að hafi verið fólgin í því að færa frumkvæðið í hendur nemendanna. Hrafnhildur segir að fyrir suma nemendur hafi tekið smá tíma að laga sig að þessari breyttu nálgun og hugsun en þegar þeir hafi verið komnir yfir í þröskuldinn hafi þetta gengið mjög vel og höfðað til nemenda. Efninu var skipt upp í nokkra efnisþætti eða skúffur – sem dæmi trúarbrögð, heilbrigðiskerfi, menning, fjölskyldan, stjórnkerfið og Alþingi o.s.frv.

Verkefnaskil voru fjölbreytt og mismundi leiðir farnar í þeim – veggspjöld, teikningar, ppt-skjöl, podköst o.fl.

Hrafnhildur metur það svo að þessi tilraun hafi fengið mjög vel og virkni nemenda hafi almennt verið meiri sem hafi verið mjög jákvætt.

Í lok áfangans buðu nemendur til einskonar lokahófs þar sem foreldrar og forráðamenn komu og kynntu sér hvað nemendur höfðu verið að vinna að.

Hrafnhildur segir að þær Valgerður hafi verið ánægðar að hafa stokkið út í djúpu laugina og farið í þessa vegferð. Ferðin til Barselóna hafi skilað þeim fjölmörgum hugmyndum sem þær hafi síðan heimfært upp á félagsfræðiáfangann. Hið glögga gestsauga þeirra í Barselóna hafi nýst þeim vel. Umræddur félagsfræðiáfangi er ekki kenndur núna á vorönn en verður væntanlega í boði næsta haust. Hrafnhildur segist ekki sjá annað en að aftur verði fetuð sama slóð en eitt og annað hafi þær þó fundið út að virkaði ekki nægilega vel og þeim atriðum verði breytt.