Aldrei verið fleiri í húsgagnasmíði
Tólf annars árs nemar í byggingadeild VMA stunda nú nám í húsgagnasmíði og hafa þeir aldrei verið fleiri í tæplega þrjátíu ára sögu skólans. Þar af eru fimm konur.
Þessir nemendur hófu nám í byggingadeild VMA sl. haust og því er þetta þriðja önnin þeirra í deildinni. „Námið í húsgagnasmíði tekur fimm annir, þar af eru þrjár sameiginlegar með nemendum í húsasmíði,“ segir Halldór Torfi Torfason, brautarstjóri byggingagreina í VMA. Hér eru nánari upplýsingar um námið í húsgagnasmíði.
„Þessi fjöldi í húsgagnasmíði er algjört einsdæmi hér í skólanum. Í þessum hópi er bæði um að ræða fullorðið fólk og einnig nemendur sem hafa komið hingað að loknum grunnskóla. Mér heyrist á nemendunum að sumir þeirra stefni að því að starfa við þessa iðngrein en aðrir eru m.a. að horfa til frekara náms í hönnun,“ segir Halldór Torfi og bætir við að þar til þessi sprenging varð í aðsókn í húsgagnasmíðina hafi einn til í mesta lagi fjórir nemendur valið húsgagnasmíðina á ári.
Hér má sjá nokkrar myndir af nemendum í húsgagnasmíði.
„Ég kann ekki að skýra nákvæmlega hvað veldur þessum aukna áhuga en hins vegar er ljóst að undanfarin ár hefur stóraukist áhugi á því að gera upp gömul húsgögn. Það hefur eitthvað að segja í þessu,“ segir Halldór Torfi og bendir á að hér á árum áður hafi húsgagnasmíði verið nokkuð sterk iðngrein í landinu, m.a. á Akureyri, en með auknum innflutningi húsgagna hafi hún látið undan síga og lognast nánast út af. En vonandi sé þessi aukni áhugi á faginu til marks um að greinin sé aftur á uppleið.
Nú stunda í það heila um 50 nemendur verklegt nám við byggingadeild VMA og má segja að deildin sé smám saman að ná vopnum sínum á ný eftir lægð í kjölfar efnahagshrunsins. Þá má segja að byggingaiðnaðurinn hafi nánast frosið og um leið snarminnkaði aðsókn í nám í byggingagreinum. „En þetta er allt að koma og má segja að nemendafjöldinn sé að komast á rétt ról á nýjan leik,“ segir Halldór Torfi Torfason.