Fara í efni

Allir sex skólameistararnir samankomnir

Skólameistararnir sex. Frá vinstri: Benedikt Barðason, Haukur Jónsson, Hjalti Jón Sveinsson, Bernhar…
Skólameistararnir sex. Frá vinstri: Benedikt Barðason, Haukur Jónsson, Hjalti Jón Sveinsson, Bernharð Haraldsson,Sigríður Huld Jónsdóttir og Baldvin J. Bjarnason. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

Sex hafa gegnt starfi skólameistara VMA í þau fjörutíu ár sem skólinn hefur starfað. Allir mættu þeir í gær í móttöku sem efnt var til fyrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn VMA.
Bernharð Haraldsson var fyrsti skólameistari skólans, hann var skipaður skólameistari 1. júní 1983 og gegndi þeirri stöðu til loka skólaársins 1999 er hann lét af störfum. Skólaárið 1988-1989 var Bernharð í orlofi í Kaupmannahöfn og var Baldvin J. Bjarnason, aðstoðarskólameistari, starfandi skólameistari það skólaár. Á síðasta starfsári Bernharðs sem skólameistari, 1989-1999, leysti Haukur Jónsson aðstoðarskólameistari Bernharð af í veikindaleyfi hans.
Hjalti Jón Sveinsson var skipaður skólameistari VMA árið 1999 og gegndi því starfi til ársloka 2015. Frá 1. janúar 2016 var hann skipaður skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík. Skólaárið 2011-2012 var Hjalti Jón í námsleyfi og var Sigríður Huld Jónsdóttir, sem hafði verið aðstoðarskólameistari frá 2006, skólameistari VMA þann vetur. Sigríður Huld var síðan skipuð skólameistari VMA 1. janúar 2016 og hefur gegnt því starfi síðan að frátöldu skólaárinu 2019-2020 þegar hún var í námsleyfi og Benedikt Barðason aðstoðarskólameistari gegndi starfi skólameistara.