Fara í efni

Bleikt í minningu Bryndísar

Að frumkvæði nemendafélagsins Þórdunu verður bleikur fimmtudagur í VMA í dag í minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést af sár­um sín­um 30. ágúst sl. eft­ir stunguárás á Menningarnótt í Reykja­vík. Bleikur var uppáhalds litur Bryndísar og með því að klæðast bleiku í dag vilja nemendur og starfsfólk VMA heiðra minningu Bryndísar Klöru og sýna hluttekningu og stuðning við fjölskyldu hennar og vini.

Minn­ing­ar­sjóð Bryn­dís­ar Klöru hefur verið stofnaður og er for­seti Íslands, Halla Tóm­as­dótt­ir, vernd­ari sjóðsins. Sjóðnum er ætlað að styðja við verk­efni sem miða að því að vernda börn gegn of­beldi og efla sam­fé­lag þar sem sam­kennd og sam­vinna eru í for­grunni. Sjóður­inn mun ein­beita sér að fræðslu, rann­sókn­um og vit­und­ar­vakn­ingu til að koma í veg fyr­ir að sá hörmulegi atburður er leiddi til fráfalls Bryndísar Klöru end­ur­taki sig.

Tekið er við framlögum á reikn­inginn 0515-14-171717, kennitala 430924-0600.

Við stofnun minningarsjóðsins voru skilaboðin þessi:

„Heiðrum minn­ingu Bryn­dís­ar með því að velja líf en ekki hníf. Við biðlum til allra sem bera hnífa að skila þeim til lög­regl­unn­ar. For­eldr­ar Bryn­dís­ar óska þess að dauði henn­ar verði til þess að vopna­b­urður heyri sög­unni til og kær­leik­ur­inn verði eina vopnið. Stönd­um sam­an fyr­ir ör­ugg­ara og betra sam­fé­lagi.“