Fara í efni

Bréf til nemenda og foreldra/forsjáraðila vegna vitunarvakningar gegn ofbeldi

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 16: Dregið verði verulega úr hvers kyns ofbeldi og dauðsföllum s…
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 16: Dregið verði verulega úr hvers kyns ofbeldi og dauðsföllum sem rekja má til þess.

Kæru nemendur í VMA, foreldrar/forsjáraðilar 

 Áhyggjur af auknum vopnaburði og ofbeldi meðal barna og ungmenna hafa farið vaxandi og hafa alvarleg atvik undanfarið ýtt undir þær áhyggjur. Við þessu er mikilvægt að bregðast.  Vopnaburður á almannafæri er lögum samkvæmt bannaður (Vopnalög nr. 16/1998). Ef nemandi verður uppvís að því að bera vopn verður málið undantekningalaust tilkynnt til lögreglu og eftir atvikum til barnaverndarþjónustu og foreldra ef um barn er að ræða. Ofbeldismál sem upp koma innan skólans eða á viðburðum í hans nafni verða sett í viðeigandi ferli og unnin eftir viðbragðsáætlun sem finna má á heimasíðu skólans, ásamt skólareglum, sem við hvetjum foreldra og nemendur til að kynna sér. Það skal tekið fram að endurskoðun á viðbragðsáætlun skólans er í vinnslu.  

Ákveðnir þættir eru verndandi gegn áhættuhegðun barna svo sem samvera foreldra og barna, fylgst sé með netnotkun þeirra, að börnum sé sýnd umhyggja og þeim séu sett skýr mörk og að foreldrar þekki vini barna sinna og foreldra þeirra. Jafnframt felst  mikið forvarnargildi í þátttöku barna í skipulögðu félagslífi innan skólans og íþrótta- og tómstundastarfi og mikilvægt er að foreldrar séu virkir þátttakendur í foreldrastarfi.  Mikilvægt er að foreldrar taki þátt í að bregðast við þessari þróun og geri allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir ofbeldi og vopnaburð. Ég hvet foreldra til að ræða við börnin sín um hvernig við sköpum í sameiningu öruggara samfélag, þ. á m. um að það sé ólöglegt að ganga um með vopn, hverjar afleiðingar ofbeldis geta verið og kynna fyrir þeim hvert þau geta leitað að stuðningi.  

Vakin er athygli á því að nemendur og foreldrar geta leitað stuðnings og ráðgjafar innan skólans svo sem hjá nemendaþjónustu, umsjónarkennara, stjórnendum, tengiliði á grundvelli farsældarlaga eða náms- og starfsráðgjafa. Þá bendum við á Hjálparsíma Rauða Krossins 1717 og netspjall á www.1717.is og á  www.112.is. Á heimasíðu 112 er einnig hægt að nálgast fræðsluefni um ofbeldi og ofbeldisvarnir.

Munum að á okkur öllum hvílir tilkynningaskylda til Barnaverndar ef ástæða er til að ætla að barn verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.  

Í sameiningu getum við stuðlað að öruggara samfélagi og aukinni farsæld. Við hvetjum ykkur til að hafa samband við skólann ef einhverjar spurningar vakna. 

Virðingarfyllst,  Sigríður Huld Jónsdóttir , skólameistari VMA