Fara í efni

Dansvídeóhátíðin Boreal í þriðjudagsfyrirlestri

Yuliana Palacios er fyrirlesari dagsins.
Yuliana Palacios er fyrirlesari dagsins.

Í dag, þriðjudaginn 29. október kl. 17-17.40, heldur Yuliana Palacios Þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Boreal Screendance Festival. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.

Í fyrirlestrinum fjallar Yuliana um dansvídeóhátíðina Boreal sem fram fer á Akureyri 1.-10. nóvember nk. Með Boreal skapast vettvangur til kynningar á dansvídeóum með það að markmiði að leiða saman innlent og erlent listafólk, byggja brýr heimsálfa á milli og hvetja til samstarfs. Á hátíðinni eru sýnd metnaðarfull dansvídeó alls staðar að úr heiminum. Verkin eru sýnd á breiðtjöldum, þeim varpað á veggi, glugga og fleiri fleti sýningarýma. Sérstaða Boreal er fólgin í innsetningum sem settar eru upp í kringum sum verkin, sem veita þeim í senn meiri dýpt og nýja vídd. Þetta er í fimmta sinn sem hátíðin er haldin og verður ókeypis á alla viðburði.

Yuliana Palacios er dansari, danshöfundur og gjörningalistakona frá Mexíkó sem hefur verið búsett á Íslandi síðan 2016. Á þessum árum hefur hún unnið sjálfstætt að eigin verkefnum og framleiðslu, oft í samvinnu við annað listafólk frá Akureyri. Hún stundar nú meistaranám í sviðslistum við Listaháskóla Íslands.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA og Gilfélagsins.