Færði námsbraut í hársnyrtiiðn öflugt hitatæki að gjöf
Á dögunum kom Geir Sigurðsson, deildarstjóri hárvörudeildar fyrirtækisins Halldórs Jónssonar í Reykjavík, í heimsókn á námsbraut í hársnyrtiiðn og færði henni á 40 ára afmæli VMA veglega gjöf frá fyrirtækinu, Climazone hitatæki, sem mun sannarlega nýtast vel í kennslunni. Eru Halldóri Jónssyni færðar bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Eins og eðlilegt er þegar tæki og tól eru mikið notuð við kennslu, eins og á sannarlega við um hitatækið í hársnyrtiiðn, var fyrir löngu kominn tími á að endurnýja það. Þessi gjöf Halldórs Jónssonar var því afar kærkomin fyrir nemendur og kennara í hársnyrtiiðn. Þetta nýja hitatæki, sem er mjög öflugt, er fyrst og fremst notað í háralitun og permanent og býr yfir bæði blæstri og þurrkun.
Þrátt fyrir að starfa hjá þessu öfluga og rótgróna heildsölufyrirtæki í Reykjavík býr Geir á Akureyri, enda Akureyringur í húð og hár. Sjálfur lærði hann hársnyrtiiðn og starfaði um tíma í faginu á Rakarastofu Akureyrar.
Hitatækið má sjá á meðfylgjandi mynd og við það standa Geir Sigurðsson, Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari og kennararnir tveir í hársnyrtiiðn í VMA, Harpa Birgisdóttir og Hildur Salína Ævarsdóttir.