Fjarvistayfirlit send út í dag mánudaginn 25. september
25.09.2023
Sviðsstjórar senda út yfirlit yfir fjarvistir í tölvupósti reglulega á alla dagskólanemendur og gildir yfirlitið sem áminning einungis ef viðvera í einstökum áföngum uppfyllir ekki lágmarkskröfu um skólasókn samkvæmt skráningu í Innu.
Athygli er vakin á því að rétt skráning viðveru er á ábyrgð nemanda. Sé skráning röng þarf nemandinn að ræða það við viðkomandi kennara.
Nánari upplýsingar um skólasóknarreglur er hægt að nálgast hér.