Frestun prófa og próf tekin annars staðar
Próf tekin annars staðar
Áfangastjórar geta leyft nemanda að þreyta próf í öðrum skóla eða skólastofnun, sendiráðum eða samþykktum stöðum, þó ekki í nærumhverfi skólans. Þessi próf eru tekin á auglýstum próftíma.
Hver nemandi getur að hámarki sótt um að flytja tvö próf.
Kostnaður við próftöku utan auglýsts prófstaðar er kr. 5000- á próf og greiðist við umsókn með millifærslu,
Reiknings nr. 0565 - 26 – 2295, Kt. 5310830759. Annar kostnaður sem fellur til á próftökustað er ekki innifalinn í þessu gjaldi.
Þeir nemendur sem vilja nýta sér þennan rétt þurfa að skrá sig í síðasta lagi föstudaginn 26. nóvember.
Nemandinn þarf sjálfur að fá leyfi til próftöku hjá viðkomandi skóla (stofnun).
Nemandi sem tekur próf í öðrum skóla hefur ekki aðgang að kennara og eigi hann rétt á að fá prófið lesið inn á
hljóðskrá er í flestum tilfellum ekki hægt að verða við því.
Frestun prófa
Nemendum sem hafa erfiða próftöflu gefst tækifæri til að fresta einu prófi til sjúkraprófa. Ekki er þó hægt að fresta verklegum prófum. Þessi frestun hefur engin áhrif á rétt nemandans til sjúkraprófa í öðrum greinum.
Nemendur geta sótt um frestun prófa til föstudagsins 26. nóvember. Umsókn hér
Sjúkrapróf verða miðvikudaginn 15. desember.
Próftafla sjúkraprófa verður birt á auglýsingatöflu í norðuranddyri og á heimasíðu skólans.
Sýnidagur námsmats verður fimmtudaginn 16. desember.