Fullt af myndum frá grunnskólakynningunni í gær
12.10.2016
Sannarlega var líf og fjör á göngum VMA í gær þegar um 400 grunnskólanemar sóttu skólann heim. Hilmar Friðjónsson, Kristín Haraldsdóttir, Birna Kristín Kristbjörnsdóttir og
Einar Örn Gíslason tóku fjölda mynda og hér birtast þær. Grunnskólanemum og kennurum eru sendar bestu þakkir fyrir komuna.