Fullveldisdeginum fagnað
01.12.2023
Fullveldisdeginum 1. desember var að sjálfsögðu fagnað á viðeigandi hátt í VMA í dag. Starfsfólk og nemendur mættu í skólann í dag í betri fötunum.
Og það setti skemmtilegan svip á daginn að nokkrir nemendur af erlendum uppruna mættu í sínum þjóðlegu búningum. Hilmar Friðjónsson kennari fangaði stemninguna í skólanum í dag með myndavélinni.