Fara í efni

Góð gjöf Smith & Norland til rafdeildar VMA

Við afhendingu skápanna. Frá vinstri: Björn Hreinsson kennari, Jón Ólafur Halldórsson vörustjóri hjá…
Við afhendingu skápanna. Frá vinstri: Björn Hreinsson kennari, Jón Ólafur Halldórsson vörustjóri hjá Smith & Norland, Guðmundur Geirsson kennari og Kári Kolbeinsson deildarstjóri hjá Smith & Norland.

Það er ómetanlegt að eiga góða að. Enn og aftur sannaðist það á dögunum þegar Jón Ólafur Halldórsson vörustjóri og Kári Kolbeinsson deildarstjóri hjá Smith & Norland komu í heimsókn í skólann og færðu rafdeild VMA að gjöf tuttugu stýrikassa, sem nýtast afar vel í kennslu í stýringum.

Guðmundur Geirsson kennari í rafiðngreinum segir það hafa verið mikla og góða himnasendingu að fá þessa stýrikassa frá Smith & Norland. Þeir nýtist sérstaklega vel í áfanganum Raflagnir 5, næst síðasta raflagnaáfanganum í náminu í rafvirkjun, en þar er farið í eitt og annað sem tengist raflögnum og töflusmíði. Rafdeild átti tíu slíka skápa en Smith & Norland gaf henni tuttugu kassa til viðbótar. Þetta segir Guðmundur að breyti öllu í kennslunni því í stórum námshópum geti nú allir nemendur unnið með sinn stýrikassa.

Jón Ólafur þekkir sérstaklega vel til rafdeildar VMA því auk þess að starfa hjá Smith & Norland er hann formaður sveinsprófsnefndar í rafvirkjun. Hann er því fastagestur í skólanum þegar verðandi rafvirkjar þreyta sveinspróf. Og næsta sveinspróf í rafvirkjun í VMA verður eftir rúma tvo mánuði, í byrjun febrúar 2025.

Kærar kveðjur og þakkir til Smith & Norland frá VMA fyrir höfðinglega gjöf til rafdeildar skólans.