Fara í efni

Hanna standa fyrir síma og spjaldtölvur

Unnið með hönnunarforritið Inkspace.
Unnið með hönnunarforritið Inkspace.

Fab Lab Akureyri er til húsa í VMA og þar er boðið upp á hin ýmsu námskeið í samstarfi við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. En þessi stafræna smiðja nýtist einnig afar vel í ólíkum námsáföngum í VMA, ekki síst í ýmsum verklegum greinum og listaáföngum. Unnið er með hin ýmsu forrit og hlutir búnir til í m.a. þrívíddarprenturum og leiserskurðarvélum.

Þegar litið var inn í Fab Lab voru m.a. nemendur á starfsbraut skólans að þjálfa sig í notkun teikni- og hönnunarforritsins Inkscape. Fyrst þarf auðvitað að hanna hlutinn í tölvu áður en hafist er handa við að búa hann til. Verkefni nemendanna fólst í því að hanna standa fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og síðan að skera þá út í leiserskera.

Einn af stóru kostunum við að kenna nemendum í stafrænni smiðju er þessi skemmtilega blanda af bóklegu (hönnun) námi og síðan þeim verklega sem felst í því að búa hlutinn til. Þetta er lærdómsríkt ferli og nemendur sýna jafnan mikinn áhuga á því.