Fara í efni

Hryllingshús VMA - Hrekkjavaka 2024

Föstudaginn 25. október verður Hryllingshús í VMA frá kl. 17-20.

Öll velkomin en börn yngri en 10 ára verða að vera i fylgd með fullorðnum. Aðgangur er ókeypis og er Hryllingshúsið sett upp af Leikfélagi VMA.

Búast má við alls konar draugum og kynjaverum. Hleypt verður inn í húsið í hópum og með hverjum hóp er sögumaður sem leiðir gesti í gegnum húsið.

Gengið er inn um inngang að vestan.

Sjáumst í Hryllingshúsinu í VMA og fögnum Hrekkjavökunni. Gestir hvattir til að mæta í Hryllingshúsið í Hrekkjavökubúningum.

Nánari upplýsingar eru að finna hér

Leikfélag VMA