Fara í efni

Hversdagslegir þræðir í þriðjudagsfyrirlestri

Loji Höskuldsson.
Loji Höskuldsson.

Í dag, þriðjudaginn 5. nóvember, kl. 17-17.40 heldur myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri með yfirskriftinni Hversdagslegir þræðir. Aðgangur er ókeypis.

Í fyrirlestrinum fjallar Loji um verklag myndlistar sinnar og hvernig hún hefur þróast í gegnum árin. Einnig mun hann tala um hvernig myndlistin getur verið innblásin af umhverfi sem venjulega fær ekki mikinn byr í huga okkar þegar tekist er á við daginn.

Loji Höskuldsson útskrifaðist í myndlist frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti 2007 og frá Listaháskóla Íslands 2010. Í Listaháskólanum lagði hann stund á útsaum sem hefur síðan verið meginþráður í hans myndlist.

Loji hélt sína fyrstu einkasýningu, Garður meðalmennskunnar, í Gallerí Port 2018 og hefur sýnt verk sín í Safnasafninu, Alþýðuhúsinu á Siglufirði, Ásmundarsal og á Kjarvalstöðum. Á síðasta ári hóf hann samstarf við V1 Gallery í Kaupmannahöfn og hélt þar einkasýninguna What I Gather.

Fyrirlesturinn í dag er síðasti þriðjudagsfyrirlestur þessarar annar en þráðurinn verður tekinn upp í janúar 2025. Sem fyrr eru fyrirlestrarnir samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA og Gilfélagsins.