Fara í efni

Minningar frá Króknum

Jasmín Skúladóttir við akrílverkið sitt, Krókurinn.
Jasmín Skúladóttir við akrílverkið sitt, Krókurinn.

Jasmín Skúladóttir, sem er fædd 2004, stefndi á listnám þegar hún lauk níunda bekk Árskóla á Sauðárkróki og þess vegna kom ekkert annað til greina en að fara í VMA. Tíunda bekk grunnskóla tók hún í Þelamerkurskóla en síðan lá leiðin í VMA – en þó ekki á listnáms- og hönnunarbraut heldur grunndeild matvælabrautar. Á síðustu stundu, áður en umsóknarfrestinum lauk, ákvað Jasmín að byrja á því að taka grunninn í eldamennsku og framreiðslu. En að grunndeildinni lokinni lá leiðin á textíllínu listnáms- og hönnunardeildar og eftir þrjár annir þar ákvað Jasmín að færa sig yfir á myndlistarlínu og af henni ætlar hún að ljúka stúdentsprófi – líklega í desember nk.

Þessa dagana er til sýnis akrílverk eftir Jasmín á vegg gegnt austurinngangi skólans. Verkið vann hún í málunaráfanga á haustönn 2024 og það kallar hún einfaldlega Krókurinn. Í verkinu segir Jasmín að megi greina ákveðnar minningar frá uppvextinum á Króknum, bæ æskunnar og uppvaxtarins sem henni þyki vænt um. Í verkinu séu m.a. trágreinar sem vísi til Litlaskógar, skógarreits skammt frá húsinu þar sem þau bjuggu á Sauðárkróki, og sprungurnar í gangstéttinni við Skagfirðingabraut, sem voru hluti af æskumyndinni og eru enn á sínum stað, séu líka í verkinu.

Jasmín segist finna sig í myndlistinni, henni líki sköpunarfrelsið sem myndlistin veiti. Hún er þó ekki viss um að hún leggi listsköpunina fyrir sig í framtíðinni, en gott sé að hafa lært þennan grunn og geta gripið í myndlistina með öðru. Sem stendur finnst henni sálfræði heillandi og hún segir að vel geti farið svo að hún stefni á að læra hana í framtíðinni.