Rauð viðvörun vegna veðurs
05.02.2025
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna veðurs næsta sólarhringinn.
Nemendur sem búa utan Akureyrar hafa verið hvattir til að leggja fyrr af stað heim til sín nú í dag, áður en veðrið skellur á. Kennsla í kvöldskóla verður óbreytt en að sjálfsögðu er fólk beðið um að sýna skynsemi ef veðurútlit er orðið slæmt.
Nemendur og starfsfólk er beðið um að fylgjast með veðurspá og færð á vegum í fyrramálið en tekin verður ákvörðun út frá veðurspá í fyrramálið hvernig skólastarfi verður háttað.
Við biðjum ykkur að fylgjast vel með heimasíðu skólans og tölvupóstum frá skólanum varðandi skólastarf á morgun, 6. febrúar.
Farið varlega og fylgist vel með á vedur.is og heimasíðu Vegagerðarinnar.
Skólameistari