Ritlistarkvöld með Erpi Eyvindarsyni
24.03.2025
Fyrra ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 26. mars á LYST í Lystigarðinum frá kl. 20-22.
Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem Blaz Roca, er einn þekktasti rappari landins. Hann er hluti af XXX Rottweilerhundum sem eru brautryðjendur íslensks rapps. Erpur hefur einnig reynslu af ritstjórn, handrita- og greinarskrifum og stýrt sjónvarps- og útvarpsþáttum.
Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, kynnast skrifum annarra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.
Veitingar í boði fyrir skráða gesti.
Skráning á linknum hér fyrir neðan: https://docs.google.com/.../1FAIpQLSctYAXmsTVnL9.../viewform
Skráning á linknum hér fyrir neðan: https://docs.google.com/.../1FAIpQLSctYAXmsTVnL9.../viewform
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.
___________________________________
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ