Sólveig Lára hlaut fyrstu verðlaun í ritlistasamkeppni Ungskálda 2024
Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2024 var kunngjörð á Amtsbókasafninu í gær, á Degi íslenskrar tungu. Fyrstu veðlaun hlaut Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir fyrir verkið Stök.
Alls bárust 26 verk í keppnina frá 18 þátttakendum. Í þremur efstu sætunum urðu:
- Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir, 18 ára, fyrir verkið Stök
- Ágústa Arnþórsdóttir, 16 ára, fyrir verkið Frestunarárátta
- Sigrún Freygerður Finnsdóttir, 18 ára, fyrir verkið Svartnætti
Í dómnefnd voru Arnar Már Arngrímsson rithöfundur, Rakel Hinriksdóttir listamaður og skáld og Vilhjálmur B. Bragason vandræðaskáld.
Þetta er tólfta ár Ungskáldaverkefnisins og hefur það vaxið og dafnað með hverju árinu. Á þessu ári var boðið upp á kaffihúsakvöld þar sem ungskáld gátu lesið úr verkum sínum og rætt málin og einnig tvær ritlistasmiðjur þar sem annars vegar Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, uppistandari og textasmiður, og hins vegar Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur, öðru nafni Ævar vísindamaður, voru leiðbeinendur. Kaffihúsakvöldið og ritlistasmiðjurnar gátu ungmennin sótt sér að kostnaðarlausu.
Við athöfnina á Amtsbókasafninu í gær lék Elías Dýrfjörð á kontrabassa.
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, VMA, MA, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.