Fara í efni

Um 1300 stærðfræðikennslumyndbönd Hilmars aðgengileg nemendum VMA á Moodle

Oft hefur eitt og annað í stærðfræðinni vafist fyrir nemendum og því varð það sem Hilmar Friðjónsson, stærðfræðikennari með meiru við VMA, hóf fyrir hálfum öðrum áratug að nýta sér myndbandatæknina í stærðfræðikennslu. Til viðbótar við hinar hefðbundnu leiðir við að kenna stærðfræðina fór hann að prófa að gera stutt myndbönd sem hann gerði nemendum aðgengileg þannig að þeir gætu horft á þau aftur og aftur. Hilmari var það fljótlega ljóst að þessi nálgun skilaði sér í auknum skilningi nemenda á hinum ýmsu öngum stærðfræðinnar. Og því hélt hann ótrauður áfram á þessari braut.

Hilmar rifjar upp að hann hafi fengið innblásturinn frá Khan Academy, risastórum kennsluvef sem byggir á hugmyndafræði bandaríska stærðfræðingsins, rafmagnsverkfræðingsins og tölvunarfræðingsins Salman Khan. 

Í það heila hefur Hilmar unnið um 1300 myndbönd, sem eru frá einni og upp í tíu mínútna löng. Myndböndin tengjast grunnáföngunum í stærðfræði á fyrsta og öðru þrepi. Hann segir að auðvitað hafi hann fyrst og fremst unnið þetta fyrir nemendur sína en það sé líka gott fyrir foreldra og forráðamenn nemenda, sem kunna að hafa lært efni þessara stærðfræðiáfanga, að vita af þessu í því skyni að leggja börnum sínum lið. 

Myndböndin eru vistuð á Moodle og hefur Hilmar nú uppfært leiðbeiningamyndband sem leiðir nemendur VMA og forráðamenn þeirra áfram í því að nálgast þennan myndbandabanka á Moodle.

Hilmar Friðjónsson er þetta skólaár í námsleyfi og kennir því ekki stærðfræði í vetur. Honum finnst hins vegar afar mikilvægt að eftir sem áður nýti nemendur sér þessi hjálpargögn í stærðfræðinámi sínu. Og NB eru þessi kennslumyndbönd nemendum aðgengileg endurgjaldslaust.