Stoðtímar fyrir nemendur
12.09.2011
Í stoðtímum er nemendum boðin aðstoð við nám
í völdum námsgreinum utan hefðbundinna kennslustunda. Þeir kennarar
sem taka þátt í stoðtímum nota til þess viðtalstímann sinn og
verða við nokkrir saman í stofu, 40 mínútur á viku hver (sjá töflu yfir
kennara, greinar, stofur og tímasetningu). Í stoðtímum er nemendum boðin aðstoð við nám
í völdum námsgreinum utan hefðbundinna kennslustunda. Þeir kennarar
sem taka þátt í stoðtímum nota til þess viðtalstímann sinn og
verða við nokkrir saman í stofu, 40 mínútur á viku hver (sjá töflu yfir
kennara, greinar, stofur og tímasetningu). Nemendur geta fengið aðstoð við heimanám, aðstoð eða frekari
útskýringar við verkefni, ritgerðir eða aðra námsvinnu í viðkomandi
grein. Nemandi sem missir úr skóla vegna veikinda gæti t.d. nýtt sér
þessa stoðtíma. Ekki er um hefðbundnar kennslustundir að ræða og
nemendur ákveða sjálfir hvaða aðstoð þeir óska eftir og hversu lengi
þeir dvelja í stoðtímanum.
Nemendur koma að eigin frumkvæði en kennarar geta beint nemanda í stoðtíma ef þeir telja það nemanda til hagsbóta. Nemendur skrá sig í gestabók í viðkomandi stofu og skrá einnig námsgreinina/greinarnar sem unnið er í. Nemendur geta leitað til kennara í stoðtíma þótt það sé ekki sá sem kennir þeim í hefðbundnum tímum. Nemendur geta því aðeins farið í stoðtíma að þeir séu ekki bundnir í kennslustund.
Allar almennar skólareglur gilda í stoðtímum.
Tafla yfir kennara, greinar, stofur og tímasetningar
Mynd er