Stoðtímar fyrir nemendur
08.03.2012
Nú á vorönninni er nemendum boðin aðstoð við nám í völdum námsgreinum utan hefðbundinna kennslustunda. Þeir kennarar sem taka þátt í þessari tilraun nota til þess viðtalstímann sinn og verða við nokkrir saman í stofu 40 mínútur á viku hver (sjá töflu yfir kennara, greinar, stofur og tímasetningu). Nú á vorönninni er nemendum boðin aðstoð við nám í völdum námsgreinum utan hefðbundinna kennslustunda. Þeir kennarar sem taka þátt í þessari tilraun nota til þess viðtalstímann sinn og verða við nokkrir saman í stofu 40 mínútur á viku hver (sjá töflu yfir kennara, greinar, stofur og tímasetningu).
Nemendur geta fengið aðstoð við heimanám, aðstoð eða frekari útskýringar við verkefni, ritgerðir eða aðra námsvinnu í viðkomandi grein. Nemandi sem missir úr skóla vegna veikinda gæti t.d. nýtt sér þessa stoðtíma. Ekki er um hefðbundnar kennslustundir að ræða og nemendur ákveða sjálfir hvaða aðstoð þeir óska eftir og hversu lengi þeir dvelja í stoðtímanum.
Nemendur koma að eigin frumkvæði en kennarar geta beint nemanda í stoðtíma ef þeir telja það nemanda til hagsbóta. Nemendur skrá sig í gestabók í viðkomandi stofu og skrá einnig námsgreinina/greinarnar sem unnið er í. Nemendur geta leitað til kennara í stoðtíma þótt það sé ekki sá sem kennir þeim í hefðbundnum tímum. Nemendur geta því aðeins farið í stoðtíma að þeir séu ekki bundnir í kennslustund.
Allar almennar skólareglur gilda í stoðtímum.
Tafla yfir kennara, greinar, stofur og tímasetningar vorið 2012