Stundatöflur og óskir um töflubreytingar í INNU haustönn 2023
Stundatöflur nemenda hafa verið birtar og um leið opnað fyrir óskir um töflubreytingar í INNU. Beiðnir um töflubreytingar fara fram í gegnum Innu og standa frá þriðjudeginum 15. ágúst og til hádegis miðvikudaginn 23. ágúst. Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel leiðbeiningar um töflubreytingar sem eru á heimasíðu skólans.
Nemendur hafi samband við sinn sviðsstjóra eða námsráðgjafa í gegnum tölvupóst.
Útskriftarefni geta haft samband beint við sinn sviðsstjóra.
Eftirfarandi þarf að hafa í huga:
- beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennaranótum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki.
- ef nemandi er með 36 tíma í töflu eða meira, er ólíklegt að beiðni um viðbót í töflu verði samþykkt.
- nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki.
- rafrænar beiðnir eru afgreiddar daglega.
Vinsamlegast athugið að verið er að vinna í að koma á sjálfvirku vali í Innu og því eru margir nemendur með áfangaval fyrir næstu 3-4 annir.
Vinsamlegast athugið einnig að það þarf að fletta áfram um eina viku í stundatöflu til að sjá alla stundatöfluna.
Sviðsstjórar:
Anna María Jónsdóttir, sviðsstjóri verknáms (anna.m.jonsdottir@vma.is) ATH! Sjúkraliðabrautin fellur hér undir.
Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta (omar.kristinsson@vma.is)
Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar (harpa.jorundardottir@vma.is)
Námsráðgjafar:
Helga Júlíusdóttir (helga.juliusdottir@vma.is)
Svava Hrönn Magnúsdóttir (svava.h.magnusdottir@vma.is)