Sýning á Amtsbókasafninu á verkum nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA
19.03.2025
Núna í mars og fram í apríl er á Amtsbókasafninu á Akureyri sýning á verkum nokkurra nemenda á listnáms- og hönnunarbraut VMA. Allt eru þetta myndverk eftir nemendur á myndlistarlínu brautarinnar.
Árið um kring eru fjölbreyttar sýningar á Amtsbókasafninu og er hver sýning í um einn mánuð. Sýningin er á jarðhæð í miðrými á milli kaffiteríu og afgreiðslu bókasafnins.
Dagný Davíðsdóttir, sem hefur umsjón með sýningarhaldinu á Amtsbókasafninu, sagði mjög ánægjulegt að eiga þetta samstarf við listnáms- og hönnunarbraut VMA og hún væntir þess að það verði árlegur viðburður. Einu sinni áður hafa nemendur á listnáms- og hönnunarbraut VMA sýnt verk sín í Amtsbókasafninu en það var í desember 2023.