Þjálfun í myndlæsi - brú inn í skólakerfið

Í dag, þriðjudaginn 25. mars kl. 17-17:40, koma fyrirlesarar síðasta þriðjudagsfyrirlesturs vetrarins í Listasafninu á Akureyri frá Listasafni Íslands; Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri, og Ingibjörg Hannesdóttir, sérfræðingur fræðslu og miðlunar. Yfirskrift fyrirlestursins er Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi, brú inn í skólakerfið. Hér er vísað til bókar sem Listasafn Íslands gaf út á síðasta ári.
Í fyrirlestrinum munu þær fjalla um þróun þessa verkefnis og útgáfu námsefnis sem miðar á markvissan hátt að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið. Einnig verður fjallað um þann margþætta ávinning sem hlýst af þjálfun í myndlæsi og hvernig nýta megi kennsluaðferðina á mismunandi skólastigum sem og í safnfræðslu.
Listasafn Íslands hlaut tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 fyrir framúrskarandi fræðslustarf og útgáfu bókarinnar á síðasta ári.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir hafa verið á dagskrá í vetur eins og undanfarna vetur og eru sem fyrr samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Myndlistafélagsins og Gilfélagsins. Sem fyrr segir er fyrirlesturinn í dag sá síðasti á þessu skólaári en þeir hefja aftur göngu sína á haustdögum.