Fara í efni

Umsóknarfrestur um fjarnám til 26. ágúst

Þó svo að nám í dagskóla í VMA sé nú þegar komið í fullan gang samkvæmt stundaskrá er fjarnám skólans ekki farið af stað, enda er almennur umsóknarfrestur um fjarnámið enn í fullum gangi, hann er til 26. ágúst nk. Því gefst enn tími til að sækja um að sitja fjarnámsáfanga. Hér eru þeir áfangar sem eru í núna á haustönn 2024.

Kennsla í fjarnámsáföngum hefst 2. september nk.

Allar nánari upplýsingar um fjarnám í VMA er að finnna hér á heimasíðu skólans undir flipanum Fjarnám efst til hægri á síðunni. 

Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta og fjarnáms, veitir líka frekari upplýsingar - omar.kristinsson@vma.is