Fara í efni

Unnur Ása nýr sviðsstjóri starfsnáms í VMA

Unnur Ása Atladóttir, sviðsstjóri starfsnáms í VMA.
Unnur Ása Atladóttir, sviðsstjóri starfsnáms í VMA.

Unnur Ása Atladóttir er nýr sviðsstjóri starfsnáms við VMA. Við starfinu tók hún af Önnu Maríu Jónsdóttur sem hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. Unna Ása hóf störf í apríl.

Unnur Ása er Norðfirðingur – fædd og uppalin í Neskaupstað. Hún brautskráðist árið 1996 sem stúdent frá Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Vann í eitt ár eftir stúdentspróf, fór síðan í iðnrekstrarfræði við Tækniskólann í Reykjavík og útskrifaðist árið 2000. Leiðin lá aftur austur í Neskaupstað tveimur árum síðar þar sem Unnur kenndi um tíma við Nesskóla – grunnskólann í Neskaupstað. Starfaði síðan hjá Lífeyrissjóði Austurlands í Neskaupstað, sem nú er hluti af Stapa lífeyrissjóði, og þá lá leiðin til sveitarfélagsins Fjarðabyggðar sem verkefnisstjóri á umhverfissviði. Árið 2013 skipti Unnur um gír og gerðist framkvæmdastjóri blakdeildar Þróttar í Neskaupstað og þjálfaði jafnframt yngri flokka félagsins, enda hefur blakið verið hluti af lífi hennar frá barnæsku í blakbænum Neskaupstað.

Árið 2019 fór Unnur í viðskiptafræðinám við Háskólann á Akureyri og áfram í meistaranám í kennslufræði við sama skóla. Námið stundaði Unnur í fjarnámi og starfaði til að byrja með eftir sem áður hjá blakdeild Þróttar. Seinna árið í meistaranáminu var hún umsjónarkennari í Nesskóla.

„Ég hafði ekki annað í huga en að halda áfram að kenna í Nesskóla en þá losnaði staða áfangastjóra við Verkmenntaskóla Austurlands og ég var ráðin í hana haustið 2021. Þetta var víðtækt starf sem tók við alls námsins í skólanum, jafnt starfsnáms, stúdentsprófsbrauta og fjarnáms. Í VA eru um 120 dagskólanemendur en einnig eru fjölmargir fjar- og dreifnemendur og nemendur í helgarlotum. Í það heila eru rúmlega 400 nemendur við skólann og yfir 500 þegar grunnskólinn er í vali á haustönn.
Starf áfangastjóra VA er fjölbreytt og skemmtilegt en þegar ég sá auglýst starf sviðsstjóra starfsnáms í VMA ákvað ég að sækja um. Mér fannst spennandi að takast á við nýja áskorun, starfa í stórum skóla og búa í stærra samfélagi á Akureyri, sem ég hafði fengið tækifæri til þess að kynnast þegar ég stundaði nám við HA. Ég er mjög spennt fyrir þessu starfi og mér hefur verið tekið afar vel af samstarfsfólki mínu. Þessa fyrstu daga hef ég verið að setja mig inn í starfið og kynnast ýmsum öngum þess. Og einnig að læra að rata um húsakynnin hér! Eitt og annað í námsumhverfinu þekki ég vel frá fyrra starfi mínu í Verkmenntaskóla Austurlands en vitaskuld er margt nýtt fyrir mér sem ég mun setja mig vel inn í. Það verður mjög gaman að vinna í því teymi sem heldur utan um námið hér,“ segir Unnur Ása.

Fjölskyldan er ennþá á tveimur stöðum en sameinast í nýjum húsakynnum á Akureyri að loknu þessu skólaári. Húseign hennar í Neskaupstað hefur verið seld og önnur keypt á Akureyri. Og víst er að KA fær góða liðsmenn í Unni og eiginmanni hennar, Sigurfinni Líndal Stefánssyni hjúkrunarfræðingi, því blakáhugi þeirra hefur ekki farið langt og tveir yngri synir þeirra hella sér í fótboltann og blakið hjá KA. Raunar var Unnur nýlega kjörin í stjórn Blaksambands Íslands – og því lætur hún eftir sem áður til sín taka í vexti og viðgangi blaksins á Íslandi.