Fara í efni

Upphaf haustannar 2024 - velkomin í VMA

Nýnemaferð ágúst 2023
Nýnemaferð ágúst 2023

Skrifstofa skólans hefur opnað eftir sumarfrí. Opnunartímar eru kl. 8:15 -15 alla virka daga nema föstudaga en þá er opið til kl. 13, lokað er í hádeginu alla daga milli kl. 12:10 og 12:30.  Stjórnendur eru komnir til starfa og náms- og starfsráðgjafar koma til starfa 12. ágúst. Nálgast má netföng hjá starfsfólki skólans á heimasíðunni. 

Móttaka nýnema

Seinar umsóknir - Haustönn 2024

Mánudaginn 19. ágúst mæta nýnemar (nemendur fæddir 2008 eða 2009) í skólann kl. 13:00. Mæting er í Gryfjuna og verður nemendum skipt niður í hópa eftir umsjónarkennurum, hægt er að sjá umsjónarkennara í Innu. Mikilvægt er að allir nýnemar mæti.

Foreldrum/forráðamönnum er velkomið að koma með nemendum.

Nemendur fæddir 2007 og fyrr sem ekki hafa verið áður í VMA eru boðaðir á kynningarfund mánudaginn 19. ágúst kl. 11.30 í M01. Nemendur sem hafa áður verið í VMA en langt er síðan síðast eru einnig velkomnir á þennan fund.  

Fundur með foreldum/forsjáraðilum

Til að efla samstarf heimilis og skóla eru forráðamenn nýnema boðaðir á rafrænan kynningarfund með námsráðgjöfum og stjórnendum á Teams mánudaginn 19. ágúst kl. 17:00, slóð á fundinn verður sett inn á heimasíðu skólans þegar nær dregur. Helsti tengiliður ykkar við skólann á þessu fyrsta ári verður umsjónarkennari nemanda (nafn umsjónarkennara kemur fram í Innu). Einnig er hægt að hafa samband við sviðsstjóra eða aðra stjórnendur eftir því sem við á.

Fyrsti kennsludagur og stundatöflur

  • Stundaskrár nemenda verða opnaðar í Innu eigi síðar en föstudaginn 16. ágúst.
  • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 20. ágúst.
  • Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og námsgögn í Innu þegar stunda­töflur birtast.

Hagnýtar upplýsingar

Nemendur þurfa að verða sér út um rafræn skilríki áður en önnin hefst.

Við bendum á  upplýsingasíðu um upphaf annar og hvetjum nem­endur til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna ýmsar upp­lýs­ingar um skólann og skóla­starfið. Nýnemar (fæddir 2008/2009) og nýir nemendur í VMA eru beðnir um að kynna sér vel upplýsingar sem eru á þessari síðu.

Hlökkum til að taka á móti nýjum og öðrum nemendum VMA.

Sigríður Huld skólameistari VMA