VMA fær bækur að gjöf frá pólska sendiráðinu á Íslandi
Pólsku sendiherrahjónin á Íslandi, Gerard Pokruszyński og Margherita Bacigalupo Pokruszainska, komu færandi hendi á bókasafn VMA á dögunum og færðu skólanum að gjöf nokkrar pólskar bækur sem hugsaðar eru til lesturs fyrir pólska nemendur í VMA.
Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni eru Pólverjar lang fjölmennastir innflytjenda hér á landi. Nærri lætur að þeir séu um tuttugu og fimm þúsund eða um 35% innflytjenda á Íslandi. Í VMA eru nú 29 nemendur af pólskum uppruna.
Með bókagjöfinni vill pólska sendiráðið leggja sitt af mörkum til þess að pólskir nemendur í VMA hafi möguleika til þess að lesa pólsku og viðhalda þannig tungumálinu betur. Í mörgum grunnskólum víða um land fá pólskir nemendur kennslu á pólsku og til stendur að setja á stofn nám í pólsku við Háskóla Íslands.
VMA færir sendiráði Póllands á Ísland bestu þakkir fyrir bókagjöfina og þakkar sendiherrahjónunum fyrir heimsóknina.