Þórduna nemendafélag
Það er alltaf nóg um að vera hjá Þórdunu, nemendafélagi VMA.
Þórduna stendur fyrir ýmsum viðburðum fyrir nemendur ásamt því að sinna hagsmunagæslu þeirra. Helsu viðburðir Þórdunu eru nýnemadagar þar sem nýnemar eru boðnir velkomnir í skólann með grillveislu, leikjum og nýnemaballi, þau halda árshátíð og ekki má gleyma söngkeppninni Sturtuhausinn. Þetta er bara brot af þeim viðburðum og uppákomum sem Þórduna stendur fyrir og oft taka þau á móti nemendum með góðgæti í upphafi skóladags á svo kölluðum gleðidögum.
Leikfélag skólans er einnig mjög virkt og setur upp leiksýningar á hverjum vetri, þar sem nemendur geta tekið þátt í uppsetningum hvort heldur það er á sviði eða baksviðs.
Nánari upplýsingar um félagslífið má finna á heimasíðu Þórdunu og á samfélagsmiðlum facebook og instagram
Við verkmenntaskólan starfar viðburðastjóri sem aðstoðar nemendafélagið við að skipuleggja viðburði á vegum nemendafélagsins.
Viðburðastjóri VMA er Sólveig Birna H. Elísarbetardóttir
(solveig.b.elisabetardottir@vma.is)
Stjórn Þórdunu veturinn 2024-2025 er:
Formaður: Hulda Þórey Halldórsdóttir
Skemmtanastjóri: Birkir Orri Jónsson
Gjaldkeri: Atli Freyr Ólafsson
Kynningarstjóri: Jasmín Arnarsdóttir
Formaður hagsmunaráðs: Gyða Rún Alfreðsdóttir
Ritari: Guðmar Gísli Þrastarson
Nýnemafulltrúi: Hlynur Blær Tryggvason
Meðstjórandi: Sigurður Jónsson
Meðstjórnandi: Elsa Mjöll Jónsdóttir