Skráningu á vorönn lýkur í dag
07.11.2013
Á miðnætti í kvöld, 7. nóvember, rennur út frestur til þess að skrá sig í áfanga á vorönn fyrir núverandi nemendur VMA. Í raun er um að ræða skráningu í nám í skólann á vorönn og því er mikilvægt að allir þeir sem ætla að stunda nám á vorönn í VMA gangi frá skráningum sínum í dag, hafi þeir ekki þegar gert það.
Á miðnætti í kvöld, 7. nóvember, rennur út frestur til þess að skrá sig í áfanga á vorönn fyrir núverandi nemendur VMA. Í raun er um að ræða skráningu í skólann á vorönn og því er mikilvægt að allir þeir sem ætla að stunda nám á vorönn í VMA gangi frá skráningum sínum í dag, hafi þeir ekki þegar gert það.
Vefjist skráningar eitthvað fyrir nemendum, ekki síst nýnemum, er þeim velkomið að leita aðstoðar hjá kennslustjórum, námsráðgjöfum eða áfangastjórum skólans.