Hársnyrtiiðn
ATH! Boðið verður upp á nám á grunndeild á vorönn 2025.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri verknáms í síma 464-0300.
Brautarlýsing
Hársnyrtir klippir, litar, setur permanent í hár og blæs og útfærir hár – allt óháð hárlengd, hárgerð og höfuðlagi. Hann velur vörur og áhöld og útfærir þjónustu á faglegum forsendum en miðar einnig við þarfir og óskir viðskiptavina. Hann vinnur sjálfstætt en getur átt samvinnu við aðrar faggreinar um skipulag og samþættingu verkefna er varða hár og tísku.
Nám í skóla er þrepaskipt þar sem gert er ráð fyrir því að hæfni og sjálfstæði fari stigvaxandi. Vinnustaðanám fléttast inn í skólatímann og er skipulagt og stýrt af skóla í samvinnu við meistara og fyrirtæki sem hafa fullgilt nemaleyfi. Það er verkefnabundið og undir sama eftirliti og aðrir áfangar brautarinnar. Vinnustaðanám er 21 eining. Tilgangur þess er að nemendur verði hæfir til þess að yfirfæra faglega þekkingu á raunveruleg viðfangsefni við starfstengdar aðstæður og þjálfist í vinnubrögðum og aðferðum á starfsvettvangi. Náminu lýkur með burtfararprófi frá skólanum sem, að lokinni starfsþjálfun, veitir rétt til að þreyta sveinspróf.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði er hægt að nálgast hér.
Annarplan
Grunnnám hár | Hársnyrtiiðn | ||||||
Greinar | 1.önn | 2.önn | 3.önn | 4.önn | 5.önn | 6.önn | |
Enska | ENSK2LS05 | ||||||
Hárblástur | HBLÁ2FB01A | HBLÁ3FB02B | HBLÁ3FB02C | ||||
Hársnyrting | HDAM2FB03A | HDAM3FB03B | HDAM3FB03C | ||||
Íþróttir | HEIL1HH04 | HEIL1HD04 | |||||
Herraklipping | HHER2FB03A | HHER3FB03B | HHER3FB03C | ||||
Klipp. og form | HKLI1GB03A | HKLI2GB03B | HKLI2GB03C | ||||
Verkleg hárlit. | HLIT1GB01A | HLIT2GB01B | HLIT2GB01C | HLIT2FB03D | HLIT3FB03E | HLIT3FB03F | |
Verklegt perm. | HPEM1GB02A | HPEM2GB02B | HPEM2GB02C | HPEM2FB02D | HPEM3FB02E | HPEM3FB02F | |
Skeggklipp. | HRAK2FB01A | HRAK3FB01B | |||||
Sýning & kepp. | HSÝN2FB04 | ||||||
Hárgreiðsla | HÁRG1GB02A | HÁRG2GB02B | HÁRG2GB03C | HÁRG2FB03D | HÁRG3FB04E | ||
Iðnteikn. hár. | ITEI1GB05A | ITEI2GB05B | |||||
Iðnfræði | IÐNF1GB04A | IÐNF2GB04B | IÐNF2GB04C | IÐNF2FB03D | IÐNF3FB03E | ||
Íslenska | ÍSLE2HS05 | ||||||
Lífeðlisfr. hár. | LÍFH1GB05A | ||||||
Lífsleikni | LÍFS1SN02 | LÍFS1SN01 | |||||
Náttúrulæsi | NÁLÆ1UN05 | ||||||
Skyndihjálp | SKYN2EÁ01 | ||||||
Stærðfræði | STÆF2TE05 | ||||||
Vinnustaðanám | VINS1GB03A | VINS2FB06B | VINS3FB06C | VINS3FB06D | |||
Starfsþjálfun | 60 einingar | ||||||
27 | 28 | 26 | 26 | 27 | 27 |
Viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi
Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans. Áfangar starfsnámsbrautar í þeim greinum sem taldar eru upp hér í töflu teljast með, t.d. ENSK2LS05 og ÍSLE2HS05 sem finna má á flestum starsfnámsbrautum, og þurfa nemendur því aðeins að bæta við sig þeim einingum í töflunni sem þeir hafa ekki þegar lokið í sínu starfsnámi.
Greinar |
||||
Íslenska | ÍSLE2HS05 | ÍSLE2KB05 | Íslenska á 3.þrepi | Íslenska á 3.þrepi |
Enska | ENSK2LS05 | |||
Danska | DANS2OM05 | |||
Stærðfræði | STÆF2xx05 (5 ein/2. þrep) |
|||
Ensku-/stærðfræðival (2./3. þrep) |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
|
Bóknámsval | 5 eininga val |