Fjölgreinabraut (FJB)
Brautarlýsing
Á fjölgreinabraut taka nemendur breiðan brautarkjarna sem inniheldur m.a. náttúrulæsi, menningarlæsi, og lokaverkefni auk kjarnagreina. Nemendur velja síðan 98 einingar úr námsframboði skólans en þær einingar geta verið hvort heldur sem er úr bóknámi eða verknámi. Brautin er góður undirbúningur fyrir háskólanám í þeim greinum sem nemendur kjósa að sérhæfa sig í. Eins gefst nemendum kostur á að nýta tónlistarnám sitt til stúdentsprófs, sjá nánar á tonak.is.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið. Nýnemar eru ekki innritaðir á fjölgreinabraut nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi.
Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði er hægt að nálgast hér.
Námið
Fjölgreinabraut er opin braut til stúdentsprófs þar sem nemendur velja áfanga m.t.t. þess háskólanáms sem þeir stefna að. Nám og kennsla fer fyrst og fremst fram í skólanum. Nemendur taka náttúrlæsi, menningarlæsi, tölfræði og lokaverkefni í kjarna auk kjarnagreina eins og íslensku, ensku og stærðfræði. Nemendur geta síðan valið í hvaða greinum þeir sérhæfa sig en alltaf þarf að horfa til þrepaskiptingar aðalnámskrár. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa.
Annarplan
Greinar |
1.önn |
2.önn |
3.önn |
4.önn |
5.önn |
6.önn |
|
Danska | DANS2OM05 | DANS2LN05 | |||||
Enska | ENSK2LS05 | ||||||
Íslenska | ÍSLE2HS05 | ÍSLE2KB05 | Íslenska á 3.þrepi | Íslenska á 3.þrepi | |||
Stærðfræði | STÆF2TE05 | ||||||
Heilsa og lífstíll | HEIL1HH04 | HEIL1HD04 | |||||
Lífsleikni | LÍFS1SN02 | LÍFS1SN01 | |||||
Menningarlæsi | MELÆ1ML05 | ||||||
Náttúrulæsi | NÁLÆ1UN05 | ||||||
Fjármálalæsi | LÍFS1FN04 | ||||||
Lokaverkefni | LOVE3SR05 | ||||||
Ensku-/stærðfræðival | ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
||||
3.tungumál | 3. tungumál | 3. tungumál | 3. tungumál | ||||
Hreyfing | Hreyfing | Hreyfing | |||||
Óbundið val | 10 einingar | 10 einingar | 15 einingar | 15 einingar | 20 einingar | 28 einingar | |
Samtals einingar | 31 | 30 | 35 | 36 | 35 | 33 | 200 |