Vélstjórn A-B-C-D
Brautarlýsing
Vélstjórnarnám skiptist í fjögur námsstig: A,B,C og D og veitir hvert um sig ákveðin réttindi samkvæmt reglugerð 535/2008. Nemendur sem ljúka B réttindum hafa samhliða öðlast rétt til töku sveinsprófs í vélvirkjun að loknu starfsnámi og nemendur sem ljúka námi til C stigs hafa einnig lokið stúdentsprófi. Lokastig námsins, til D réttinda er á 4. þrepi. Námið er skipulagt í samræmi við alþjóðlegar kröfur (IMO, STCW) og öðlast nemendur haldgóðan grunn til starfa jafnt til sjós og lands.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Námið
Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í sex námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem vélstjóri. Vélstjórn D er til sjötta námsstigs, enda hafi nemandi lokið fimmta námsstigi. Sjötta námsstig (réttindi D) er til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl (STCW III/2). Þetta námsstig er jafnframt nám í kælivélavirkjun og veitir réttindi til starfsheitisins vélfræðingur. Í náminu öðlast nemendur einnig viðeigandi menntun og þjálfun þannig að þeir geti sinnt vélstjórnarstörfum í landi, t.d. á sviði orku- og veitufyrirtækja og í iðnaði. Til sjós er starfssvið vélstjóra að annast rekstur og viðhald vél- og rafbúnaðar og tryggja, í samvinnu við aðra yfirmenn um borð, að rekstur skipsins fullnægi gildandi lögum og reglum, s.s. um öryggi skipa og mengunarvarnir. Véla- og tækjabúnaður skipa er mjög fjölbreyttur þar sem skip eru hönnuð til ólíkra hlutverka. Störf vélstjóra eru því víðtæk og spanna starfssvið margra starfsstétta í landi. Þeir sem ljúka námi til alþjóðlegra atvinnuréttinda og afla sér alþjóðlegra atvinnuskírteina hafa með því öðlast heimild til þess að gegna þeirri stöðu sem atvinnuskírteini veitir þeim rétt til án tillits til gerðar skips, hvar skipið er skráð og þess hafsvæðis þar sem skipið er í förum. Til þess að fá heimild til að gegna stöðu á erlendu skipi þarf þó að koma til samþykki siglingayfirvalda fánaríkis skipsins. Í landi stunda vélstjórar margvísleg störf og nýtist menntun þeirra vel á mörgum sviðum. Vélstjórar hafa á undanförnum árum og áratugum átt greiðan aðgang að störfum í landi, bæði við rekstur og viðhald vélbúnaðar, auk ýmissa stjórnunarstarfa. Nemendur sem fá þjálfun og undirbúning til vottunar á meðferð og notkun flúoraðra gróðurhúsalofttegunda í kælikerfum hafa menntun til sérhæfðra starfa í kæliiðnaði.
Annarplan
Ö | VÉLSTJÓRN A*-B (222 ein) (Nánari brautarlýsing hér) | EI. | |||||||||
1.ö | ENSK2LS05 | GRUN1FF04 | HEIL1HH04 | LÍFS1SN02 | LOGS1PS03 | SMÍÐ1NH05 | STÆF2RH05 | SKYN2EÁ01 | VÉLS1GV05 | 34 |
|
2.ö | GRUN2ÚF04 | HEIL1HD04 | HLGS2MT03 | ÍSLE2HS05 | LÍFS1SN01 | RAMV1HL05 | SMÍÐ2NH05 | STÆF2AM05 | VÉLS2KB05 | 37 | |
3.ö | EÐLI2AO05 | EFMA1JS04 | ENSK2RM05 | ÍSLE2KB05 | RAFS1SE03 | RAMV2MJ05 | VÉLF1AE05 | VÉLS2TK05 | 37 | ||
4.ö | EFNA2ME05 | IÐNT3AC05 | RAMV2SR05 | REGL2HR05 | SMÍÐ3VV05 | STÝR1LV05 | VÉLF2VE05 | UMHV2ÓS05 | 40 | ||
5.ö | HLGS2SF04 | HÖSK2SS05 | KÆLI2VK05 | LAGN3RS04 | REIT2AR05 | SJÓR2ÁS05 | STÆF2VH05 | VÉLS3VK05 | 38 | ||
6.ö | RAMV3RF05 | RÖKR3IS05 | STÖL2SA04 | VÉLS3SV05 | VÉLT3ÁL04 | VIÐH3VV04 | VIÐS2PM05 | VÖRS1VÖ04 | 36 | ||
VÉLSTJÓRN C (294 ein) (Nánari brautarlýsing hér) | |||||||||||
7.ö | DANS2OM05 | EFNA3OH05 | ÍSLE3xx05 | KÆLI3VC05 | RAMV3VC04 | STJR3ÁS01 | STÆF3FD05 | VÉLF3VC04 | 34 | ||
8.ö | EÐLI3AV05 | EFNA3VC04 | ENSK3VG05 | ÍSLE3xx05 | RAMV4VC05 | RÖKR3VC04 | STÆF3HD05 | STJR4VM05 | 38 | ||
VÉLSTJÓRN D (341 ein) (Nánari brautarlýsing hér) | |||||||||||
9.ö | BURF4VD04 | RAMV4VD05 | REGL4RD05 | ÚTRE4SD04 | VÉLF4VD05 | 23 | |||||
10.ö | KÆLI4VD05 | LOKA4VD04 | REIT4SL05 | VÉLT4VD05 | VÉLF4VD05E | 24 |
*ATH! Vélstjórn A (61 ein) er fyrst og fremst ætlað sem fagnám til að öðlast atvinnuréttindi til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kw (auk siglingatíma). Sjá hér brautarlýsingu
*Vélvirkjun er samþætt vélstjórnarnámi til VB réttinda. Sjá brautarlýsingu vélvirkjunar hér
** Fyrstu tvær annir eru nemendur skráðir í grunnnám málm- og véltæknigreina