HBFR1HL04 - Heilbrigðisfræði með áherslu á heilbrigðan lífstíl
heilbrigður lífstíll
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á hvað felst í heilbrigðum lífstíl. Fjallað verður um hugtakið heilbrigði og áhrif lifnaðarhátta á eigið heilsufar. Nemandinn fær fræðslu um nauðsyn hreinlætis, umhirðu um eigin líkama, mikilvægi hollustu og hvernig greina eigi á milli hollra og óhollra lífshátta.
Þekkingarviðmið
- persónulegu hreinlæti og mikilvægi þess í daglegu lífi
- áhrifum hreinlætis á líðan
- hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
- áhrifum lifnaðarhátta á líðan
- mikilvægi hollra lífshátta og hreyfingar
Leikniviðmið
- fara eftir ráðleggingum í hollum lífsháttum, fæðuvali og hreyfingu
- stunda ábyrga lífshætti
- þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
- þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
- þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
- sinna eigin hreinlæti
Hæfnisviðmið
- bera ábyrgð á eigin lífi
- viðhafa persónulegt hreinlæti
- viðhalda almennri vellíðan
- viðhalda og bæta eigin heilsu
- stunda heilbrigt líferni