STAR1SÚ04 - Starfsfræðsla með áherslu á skólalok og útskrift
Skólalok og útskrift
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum fá nemendur fræðslu um þá möguleika sem bjóðast að loknu námi varðandi frekara nám, störf og áhugamál. Fjallað verður um mismunandi búsetuform, færslu heimilisbókhalds, áætlanir um matarinnkaup, skipulagningu heimilishalds og fleira tengt því. Nemandinn lærir að lesa og skilja launaseðla. Þá er fjallað um réttindi, ábyrgð og skyldur einstaklinga sem borgara og þátttakenda í lýðræðissamfélagi. Einnig verður fjallað um þátt stéttarfélaga og hlutverk þeirra í samfélaginu. Að auki undirbúa nemendur útskrift að vori, skipuleggja fjáröflun og sameiginlegt ferðalag. Áfanginn er tekin á lokaári.
Þekkingarviðmið
- hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
- hvað þurfi til að búa sjálfstætt
- hvaða möguleika hann hafi til frekara náms
- hvar hann leitar eftir starfi og hvaða leiðir hann hefur til að fá það starf sem hann óskar eftir
- mikilvægi frístundastarfa og félagslegrar virkni
- heilsusamlegu líferni
- skipulagningu útskriftar
- atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
Leikniviðmið
- halda heimilisbókhald
- gera áætlanir um innkaup
- framkvæma þrif á heimili
- leita eftir upplýsingum á netinu um opinbera þjónustu
- lesa launaseðil
- lesa innihaldslýsingar með tilliti til hollustu og góðrar heilsu
Hæfnisviðmið
- meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
- skipuleggja heimilishald
- nýta sér tómstunda- og félagsstörf sem henta
- búa til eigin ferilskrá
- njóta líðandi stundar og samveru við aðra
- lifa heilbrigðu lífi
- undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift