Á lokasprettinum í fatahönnun í Bournemouth - með góðan grunn úr VMA
Þórey Lísa Þórisdóttir útskrifaðist sem stúdent af listnáms- og hönnunarbraut VMA árið 2015, lauk bæði myndlistar- og textíllínu. Leið hennar lá strax til Englands þar sem hún hóf nám í Arts University Bournemouth í samnefndri borg á suðurströnd Englands. Þann 28. júní er komið að kaflaskilum hjá Þóreyju þegar hún brautskráist með BA-próf í fatahönnun.
Þórey Lísa er 22 ára Akureyringur. Á sínum tíma lá beint við að fara í listnám í VMA því þar lá hennar áhugi. Hún fann sig vel í náminu og leiðin áfram í frekara nám var bein og breið. Hún ákvað að fara strax erlendis og staldraði við listaháskólann í Bournemouth í því skyni að læra fatahönnun. Fyrsta árið er almennur grunnur, á öðru árinu fá nemendur meira svigrúm og í vetur, á þriðja og síðasta árinu, er nemendum ætlað að hanna sína eigin fatalínu og fylgja henni eftir. Þórey Lísa ákvað að hanna hversdagslega íþróttafatnaðarlínu, ekki þó til þess að fara í í ræktina heldur til þess að nota dags daglega. Lokaverkefni sínu skilaði hún sl. föstudag og á næstu þremur vikum þarf hún að vinna að því m.a. að setja upp vefsíðu, sýnimöppu og ferilskrá. Þann 24. maí er síðan komið að sýningu á verkum nemenda. Hér má sjá föt sem Þórey Lísa hannaði á lokaspretti námsins í Bournemouth.
Á fimmta tug nemenda ljúka námi af þessari braut í Arts University Bournemouth í vor. Yfirgnæfandi meirihluti nemenda eru Bretar. Í það heila er 21 Íslendingur í skólanum, Þórey Lísa er eini Íslendingurinn sem brautskráist sem BA í fatahönnun í vor, tveir íslenskir nemendur eru í fatahönnun á öðru ári og einn á fyrsta ári.
"Námið í Bournemouth hefur verið mjög þroskandi og gefandi og ég er afar sátt að hafa farið þessa leið að loknu námi í VMA. Það er engin spurning að VMA bjó mig vel undir þetta nám, mér fannst ég vera betur undirbúin en margir af mínum samnemendum enda fékk ég mjög góðan grunn í VMA í að sníða, sauma og teikna. Allt hefur þetta nýst mér vel. Teiknikunnáttan hefur gert það að verkum að ég teikna mín snið auk þess sem ég nýti mér tölvutæknina sem almennt er notuð þegar út á vinnumarkaðinn er komið. Það er full ástæða til að hvetja nemendur sem eru að ljúka textílnámi að skoða þennan möguleika í frekari náms, ég mæli með honum. Þetta er gott nám og það er mjög þroskandi og hvetjandi að fara í nám erlendis," segir Þórey Lísa.
Um framhaldið segir hún óvíst. Hún hafi þó hug á því að fara út á vinnumarkaðinn að lokinni útskrift í júní. En hvar það verði sé óráðið. Framundan sé að sækja um vinnu og í þeim efnum horfi hún til London. Þar sé samkeppnin sannarlega mikil en skólinn sé fús að leggja nemendum lið við að finna sér vinnu í faginu. Hvað út úr þessu kemur segir Þórey Lísa að eigi eftir að koma í ljós. En síðar segist hún vel geta hugsað sér að starfa hjá þekktum fyrirtækjum eins og H&M í Svíþjóð eða Adidas í Þýskalandi. En það segir hún að sé eitthvað sem hún horfi ekki til strax, fyrst sé að leita sér að vinnu í London. Hún horfi til þess að vera áfram í Englandi enda sé kærastinn hennar þarlendur, frá Essex í útjaðri London. Þó svo að handbolti sé ekki sérlega hátt skrifaður í Englandi var það þó svo að handboltinn tengdi þau saman. Þórey Lísa hefur spilað handbolta frá unga aldri og hefur spilað eilítið samhliða skólanum í Bournemouth. Og kærastinn, sem er hagfræðimenntaður, er sömuleiðis í íþróttinni, spilar í marki þegar stundir gefast frá vinnu hans í Southampton, sem er skammt frá Bournemouth.