Bleikhærðir bræður á Bleika deginum
Bleiki dagurinn er í dag, 23. október, en hann er haldinn til þess að sýna öllum konum sem hafa greinst með krabbamein stuðning og samstöðu. Á þessum degi eru landsmenn hvattir til þess að klæðast bleiku, lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma og að sjálfsögðu bera bleiku slaufuna sem hefur verið til sölu núna í október.
Bræður frá bænum Kvíaholti á Mýrum, Eyjólfur Ágúst (f. 2008) og Jóhannes Þór (f. 2006) Hjörleifssynir, sem báðir stunda nám í VMA, hafa allan þennan mánuð verið með hárið sitt bleikt, með því vilja þeir minna á mikilvægi þess að styðja við bakið á konum sem hafa greinst með krabbamein og efla forvarnir gegn krabbameini. Eyjólfur segir að með þessu vilji þeir bræður sýna móður þeirra, sem hefur frá 2017 í tvígang greinst með krabbamein, og öllum konum sem glími við þennan sjúkdóm stuðning í verki.
Jóhannes er á þriðja ári í vélstjórnarnámi í VMA og í október fyrir tveimur árum gerði hann það sama og nú, spreyjaði hár sitt bleikt. Eyjólfur hóf nám í VMA núna í haust og er í grunndeild málmiðnaðar. Í framhaldinu stefnir hann líka í vélstjórn. Þeim bræðrum, sem báðir búa á Heimavist VMA og MA, þótti tilvalið að spreyja hár sitt bleikt núna í október og vekja athygli á þessu mikilvæga málefni.