Dagskrá jafnréttis- og mannréttindaviku í VMA 31. október - 4. nóvember
Í næstu viku, dagana 31. október til 4. nóvember, verður efnt til jafnréttis- og mannréttindaviku í VMA. Boðið verður upp á kvikmyndasýningar, fyrirlestrar verða haldnir og tónlist flutt. Eftirfarandi er dagskrá vikunnar:
31. okt – MÁNUDAGUR
09:40 – Gryfjan: Sigríður Huld, skólameistari, ræðir við nemendur um jafnréttisstefnu skólans og verkefni sem skólinn er að taka þátt í með Jafnréttisstofu.
12:00 – 13:00 – M-01: Kalli (fyrrum nemandi á starfsbraut VMA) og Kári aðstoðarmaður hans segja frá lífi Kalla og samskiptum hans með aðstoð tölvu. - ath. tímasetningu.
13:15 – M-01: Rauði krossinn með kynningu á starfi sínu með sérstakri áherslu á þau verkefni sem við getum tekið þátt í.
14:45 – M-01: Heimildamynd
1. nóv – ÞRIÐJUDAGUR
08:15 – D-15: Heimildamynd um börn í stríði og umræður
09:40 – Gryfjan: Örn Smári syngur
11:25 – M-01: Hinsegin Norðurland
13:15 – M-01: Jafnréttisstofa
20:00 – Kaffi Ilmur: Feministafélög VMA og MA spjalla (allir velkomnir)
2. nóv – MIÐVIKUDAGUR
09:40 – Gryfjan: Vala syngur
09:55 – M-01: Fyrirlestur Zane frá Alþjóðaskrifstofu Akureyrar
11:25 - Fyrirlestur frá Húðflúrstofu Norðurlands – líkamsímynd, staðalmyndir og fordómar
13:15 – M-01: Fyrirlestur Magnúsar frá Amnesty
3. nóv – FIMMTUDAGUR
08:15 – D-15: Heimildamynd um barnaþrælkun og umræður
09:40 – Gryfjan: Söngatriði úr Litlu hryllingsbúðinni
11:25 – Bókasafn: Leshringur
13:15 – M-01: Þjónandi leiðsögn – Kiddi Torfa
20:00 – M-01: Bíó og popp
4. nóv – FÖSTUDAGUR
09:40 – Gryfjan: Eitthvað á milli nemenda og kennara
09:55 – M-01: Fyrirlestur Hildar Friðriksdóttur um hrelliklám
12:50 – Gryfjan: Slútt