Efna til bingós á sumardaginn fyrsta til styrktar fólki á flóðasvæðum í Afríku
Nemendur Hrafnhildar S. Sigurgeirsdóttur í áfanganum félagsfræði þróunarlanda hafa skyggnst inn í oft og tíðum erfitt líf fólks í vanþróuðum löndum. Fyrir röskum mánuði varð gríðarlegt tjón í þremur löndum á austurströnd Afríku, Mósambík, Malaví og Zimbabwe í kjölfar fellibylsins Idai. Nemendur ákváðu að láta ekki sitt eftir liggja og safna fjármunum fyrir þau svæði sem verst urðu út í hamförunum. Verkefnið er ærið, neyðin er mikil á þessum svæðum og margt smátt gerir eitt stórt.
Í þessum áfanga, félagsfræði þróunarlanda, er sjónum beint að ýmsu er lýtur að skiptingu heimsins í þróuð og vanþróuð lönd. Fjallað er m.a. um efnahagsleg, stjórnmálaleg og menningarleg einkenni þróunarlanda og orsakir og afleiðingar misskiptingar auðs í heiminum. Einnig er m.a. fjallað um stríðsástand og stöðu flóttamanna.
Einn nemendanna í áfanganum, Þorsteinn Ægir Óttarsson kraftlyftingamaður, tók þátt í réttstöðulyftumóti í Gryfjunni í byrjun apríl og ákváðu samnemendur hans að safna áheitum á Þorstein. Hann stóð fyllilega undir því að og setti persónulegt met í réttstöðulyftu, lyfti 277,5 kg. Um 40 þúsund króknur söfnuðust í áheit á Þorstein.
Nemendur selja einnig kjöt til styrktar málefninu. Um er að ræða pakkningar með nautgripahakki frá B. Jensen á Akureyri og einnig eru seldar pakkningar af nautakjötshamborgurum. Vörurnar eru án allra aukaefna. Í boði eru þrjár pakkningar:
1. 5 pakkar 500 g nautahakk = kr. 6000.
2. 10 pakkar 500 g nautahakk = kr. 12000.
3. 10 stk. 120 g nautakjötshamborgarar = kr. 3500.
Hægt verður að panta kjöt til miðnættis 26. apríl nk. og verður vörunum ekið til kaupenda í síðasta lagi 3. maí nk.
Í þriðja lagi ætla nemendur að efna til bingós í Gryfjunni kl. 13 á morgun, sumardaginn fyrsta, og rennur allur ágóði af því til styrktar fólki í neyð á hamfarasvæðunum í suðaustanverðri Afríku. Vert er að taka fram að ekki verður posi á staðnum. Nemendur hafa unnið að þessu verkefni saman og skipt með sér verkum að undirbúningi bingósins. Það á til dæmis um söfnun vinninga fyrir bingóið.
Söfnunarreikningur verður opinn fyrst um sinn en allir þeir fjármunir sem nemendur safna í þessu átaki verða síðan afhentir Rauða krossinum sem mun koma þeim til þeirra sem eiga um sárt að binda.
Nemendur í þessum þróunarlandaáfanga segja umfjöllunarefnið hafa opnað augu þeirra fyrir svo ótal mörgu sem þeir hafi ekki til þessa velt fyrir sér, bæði úti í heimi og hér á Íslandi. Þegar ósköpin hafi dunið yfir í suðaustanverðri Afríku í mars hafi verið ákveðið að fara í söfnunarátak fyrir íbúa hamfarasvæðisins sem kæmi í stað lokaverkefnis í áfanganum.