Endurbætt Gryfja
20.08.2014
Gryfjan – miðrými skólans – hefur heldur betur fengið andlitslyftingu. Þar hafa verið gerðar ákveðnar skipulagsbreytingar en stærsta breytingin felst í nýjum húsgögnum og nýrri lýsingu.
Gryfjan – miðrými skólans – hefur heldur betur fengið andlitslyftingu. Þar hafa verið gerðar ákveðnar skipulagsbreytingar en stærsta breytingin felst í nýjum húsgögnum og nýrri lýsingu.
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA, segir það hafa verið löngu tímabært að ráðast í endurbætur á Gryfjunni og við hæfi hafi að gera það á 30 ára afmælisári skólans.
Fanney Hauksdóttir, arkitekt á Akureyri, hannaði breytingarnar á Gryfjunni og lagði línur með val á húsgögnum og lýsingu.
„Mér finnst ágætlega hafa til tekist með þessar endurbætur. Gryfjan er bjartari og vistlegri en áður og ég vænti þess að nemendur kunni vel að meta. Það var tímabært að bæta aðstöðu þeirra,“ segir Hjalti Jón.
Hér má sjá myndir sem voru teknar af endurbættri Gryfju.