Leyndardómar Einkasafns Aðalsteins
Í dag, þriðjudaginn 9. mars, kl. 17:00-17:40 verður Aðalsteinn Þórsson myndlistarmaður með þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Bakgrunnur og starf Einkasafnsins – verk myndlistarmannsins Aðalsteins Þórssonar. Í fyrirlestrinum fjallar Aðalsteinn um feril sinn sem myndlistarmaður og verkefnið Einkasafnið.
Aðalsteinn hefur um árabil rekið Einkasafnið sem nú er staðsett í Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Í þessu verkefni er gengið út frá því að neysluafgangar listamannsins séu menningarverðmæti. Á svipaðan hátt og litið er á hefðbundna sköpun sem menningarverðmæti. Aðalsteinn heldur til haga öllu því sem gengur af sinni daglegu neyslu og auk söfnunarinnar fer fram skráning, m.a. í formi ljósmynda og myndbanda. Fylgst er með niðurbroti og öðru lífrænu ferli á öllu því sem viðkemur söfnuninni. Á þennan hátt gefur Einkasafnið heildarmynd af fyrirferð einstaklingsins í umhverfinu og skoðar um leið áhrif hennar á umhverfið.
Aðalsteinn Þórsson nam við Myndlistaskólann á Akureyri og síðar í Hollandi þar sem hann útskrifaðist með Master of Arts gráðu frá Dutch Art Institute 1998. Hann hefur síðan starfað sem myndlistarmaður, lengst af í Rotterdam, en flutti heim í Eyjafjörðinn 2016. Aðalsteinn er þekktur fyrir fjölbreytni í efnisnotkun og vinnubrögðum. Hann hóf ferilinn sem málari en aðrar nálganir sóttu fljótlega á, þó enn sé teiknað og málað.
Ókeypis aðgangur er að fyrirlestrinum. Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri.