Listin er minn heimur
Sandra Wanda Walankiewicz fæddist í Póllandi árið 1997 en fluttist til Akureyrar fyrir tæpum átta árum með móður sinni og yngri systur. Þá hafði faðir hennar starfað í þrjú ár sem bátasmiður hér á landi og líkaði svo vel að úr varð að fjölskyldan fluttist búferlum til Akureyrar. Að loknu grunnskólanámi í Oddeyrarskóla lá leið Söndru beint á listnámsbraut VMA þar sem hún stundar nú nám. Að óbreyttu segist hún reikna með að ljúka náminu að rúmu ári liðnu, vorið 2017.
Það vekur athygli hversu góða íslensku Sandra talar eftir ekki lengri dvöl á landinu. Hún segist hafa lagt sig eftir því að læra íslenskuna og það hafi líka hjálpað sér að vinna við afgreiðslustörf í snyrti- og sérvörudeildinni í Hagkaup því samskipti við viðskiptavini þjálfi hana vel í tungumálinu.
„Ég lýk þriðja árinu í vor og er núna langt komin með myndlistarbrautina en ætla að bæta við mig ýmsum áföngum á hönnunar- og textílbraut. Og ég ætla að ljúka stúdentsprófi af listnámsbraut. Það kom ekkert annað til greina hjá mér en að fara á listnámsbraut í VMA því ég hef frá því ég var pínulítil haft gaman af því að teikna og mála. Ég hef gaman af því að vinna með allskonar hugmyndir hvort sem er að mála, teikna, innsetning, ljósmyndun o.fl. Sumir sögðu við mig að upp á framtíðina væri kannski betra fyrir mig að fara fyrst á t.d. félagsfræðabraut til þess að ég ætti auðveldara með að fá vinnu. En ég hlustaði ekkert á það og hef alltaf litið svo á að maður eigi að gera það sem maður hefur ánægju af. Listin er minn heimur,“ segir Sandra.
Þessa dagana hangir uppi á vegg við austurinngang VMA akrílverk sem Sandra vann í áfanganum MYL 504 á haustönn. Þar leikur hún sér að því að blanda saman íslensku landslagi og abstrakt listformi. Verkið kallar Sandra „Gullið á Mars-Landi“ og segir nafnið vísa til Íslands. Oft hafi verið sagt um landið að þar megi finna megi ýmsa staði á sem líkist yfirborði reikistjörnunnar Mars. Sandra segist hafa mikla ánægju af því að leika sér með form og liti og í þessu tilfelli hafi hún tekið fjölda ljósmynda af landslagi og mismunandi áferð sem hún hafi síðan unnið verkið út frá.
Sandra ætlar að sækja um íslenskan ríkisborgararétt og var einmitt í gær að kynna sér hvernig að því skuli staðið. Gangi það allt eftir verður hún með tvöfalt ríkisfang. Hún segist líta á Ísland sem sitt heimaland, hér líki henni mjög vel og á Akureyri sér hún fyrir sér að búa í framtíðinni. Hún á íslenskan kærasta, sem reyndar er einnig nemandi í VMA, í byggingadeildinni.