Hvatningarsjóður Kviku
20.04.2020
Vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í skólum landsins vegna Covid-19 og til að koma til móts við nemendur á þessum krefjandi tímum hefur Kvika ákveðið að framlengja frest til að sækja um styrk úr Hvatningarsjóði iðnnema og Hvatningarsjóði kennaranema til 31. maí 2020.
Núna er opið fyrir umsóknir um styrki úr Hvatningarsjóði iðnnema og Hvatningarsjóði kennaranema en allar helstu upplýsingar um sjóðina má finna á heimasíðu bankans: kvika.is/hvatningarsjodir