Ine Lamers með þriðjudagsfyrirlestur
Myndlistarkonan Ine Lamers verður með þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu í dag kl. 17. Yfirskrift fyrirlestursins er „Remote“ og er hann í röð fyrirlestra á þriðjudögum í vetur í Ketilhúsinu, sem eru samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins. Aðgangur er ókeypis. Fyrirlestur Ine verður á ensku. Þetta er síðasti þriðjudagsfyrirlesturinn á þessu ári en þráðurinn verður tekinn upp eftir áramót.
Í fyrirlestrinum í dag kynnir Ine tvö af verkefnum sínum sem eru unnin á mismunandi tíma og eru ólík að innihaldi og í nálgun. Samt sem áður eru aðal umfjöllunarefni beggja verkefnanna sjálfsmynd og samband mannsins við umhverfi sitt.
Ine mun segja frá vídeóverkinu Not She sem er í eigu Listasafnsins á Akureyri, hugmyndinni á bakvið verkið, gerð þess o.fl. Einnig mun hún fjalla um verkefni sem hún vinnur að um þessar mundir í Hrísey undir vinnuheitinu Remote Sensing og tengingu þess við önnur eldri verkefni. Auk þessa verða sýnd myndskeið sem hún vann í listamannadvöl í Ólafsfirði þar sem landslagið og draumkenndir þættir þess eru viðfangsefnið.
Mondriaan sjóðurinn styrkir dvöl Ine Lamers á Íslandi.