Með mörg járn í eldinum
Í verknámsblaðinu 2020, sem kom út í mars sl., er stutt viðtal við Önnu Kristjönu Helgadóttur, nemanda í grunndeild rafiðna í VMA. Auk námsins hefur Anna Kristjana verið afar virk í félagsstarfi í skólanum, hún tekur ríkan þátt í starfi Skátafélagsins Klakks á Akureyri, situr í ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og yrkir ljóð og skrifar smásögur þegar tími gefst til.
Þegar Anna Kristjana er spurð hvernig hún komi þessu öllu heim og saman segist hún einfaldlega þurfa að hafa alltaf eitthvað að gera og lykilatriðið sé að skipuleggja sig vel. Þannig gangi þetta upp.
Rafmagnið heillar
Á fyrstu önn náms í VMA var Anna Kristjana í grunndeild matvælabrautar, var síðan í eina önn á náttúrufræðibraut en lýkur í vor grunndeild rafiðna og stefnir á nám í rafeindavirkjun næsta haust. „Þegar ég var á matvælabrautinni kynntist ég krökkum sem voru í grunndeild rafiðna. Í eyðum í stundaskránni fór ég með þeim í tíma í grunndeild rafiðna og það kveikti áhuga minn. Ég ákvað því að færa mig yfir í rafmagnið og sé ekki eftir því. Ég hef alltaf haft gaman að stærðfræði og á fyrstu önninni í grunndeildinni vorum við mikið í formúlum og slíku í rafmagnsfræðinni. En þetta hefur bara orðið skemmtilegra og skemmtilegra eftir því sem liðið hefur á námið og ég hlakka til að byrja í rafeindavirkjuninni í haust,“ segir Anna Kristjana.
Á kafi í félagslífinu
Þetta er annar veturinn sem Anna Kristjana situr í stjórn nemendafélags VMA – Þórdunu og þar er að sjálfsögðu í mörg horn að líta og nóg að gera. Hún var í Gettu betur liði VMA í vetur og er einnig í Tækniráði Þórdunu, sem hefur haft á sinni könnu að halda utan um tæknimál vegna viðburða í skólanum. Sem hluti af Tækniráðinu kom hún að hljóð- og ljósvinnslu í uppfærslu Leikfélags VMA á leikritinu Tröllum sem sýnt var í Menningarhúsinu Hofi í febrúar.
Anna Kristjana segist yrkja og skrifa þegar tími gefist til á veturna en mest skrifi hún á sumrin. Árið 2018 sigraði hún Ungskáld, sem er árleg ritlistasamkeppni ungs fólks á aldrinum 16 til 25 ára í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, og voru verk Önnu Kristjönu í tveimur efstu sætunum.
Í ungmennaráði heimsmarkmiða SÞ
Í vetur hefur Anna Kristjana setið í ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Hún sótti um að sitja í ráðinu til eins árs og var ein tólf ungmenna af öllu landinu sem voru valin af hundrað og áttatíu umsækjendum. Á starfsárinu hittist ráðið á sex fundum, einn þeirra er með ríkisstjórn Íslands, og fer yfir ýmis mál með fólki úr stjórnkerfinu, með það að markmiði að styrkja stöðu barna og unglinga í samfélaginu. Á fundi ungmennaráðs í janúar sl. var fundað í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og rætt um menntamál frá ýmsum hliðum.