Móttaka nýnema – kynningarfundur fyrir foreldra
Stundatöflur verða afhentar nemendum nk. fimmtudag, 21. ágúst. Nýnemar (f. 1998 og síðar) skulu nálgast stundatöflur sínar milli kl. 13.30 ogh 14.00 í Gryfjunni – miðrými skólans. Síðar þennan sama dag verður haldinn kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema.
Eftir að nýnemar hafa fengið stundatöflur í sínar hendur verður formleg móttaka nýnema í Gryfjunni kl. 14. Þar munu stjórnendur skólans hitta nemendur en síðan fara þeir í kennslustofur með umsjónarkennurum og þar verður farið yfir ýmsa þætti er varða fyrstu dagana í skólanum ásamt því að gengið verður um skólann. Gert er ráð fyrir að nemendur verði með umsjónarkennurum sínum til kl. 15.30-16.00. Rétt er að taka fram að forráðamönnum nýnema er velkomið að vera með þeim allan þennan fyrsta skóladag í VMA.
Klukkan 16-17 á fimmtudaginn verður síðan kynningarfundur fyrir foreldra í stofu M01 þar sem stjórnendur skólans hitta foreldra og svara spurningum. Þann 2. september verður annar fundur stjórnenda með foreldrum og þar verða einnig umsjónarkennarar nýnema.
Á fimmtudaginn, á meðan á töfluafhendingu stendur, verða starfsmenn Lostætis, sem annast matarsölu í matsalnum í Gryfjunni, á staðnum og selja matarkort/annarkort. Einnig er hægt að kaupa matarkort í gegnum vefinn - sjá hér
Bókalista fá nemendur með stundatöflunni á fimmtudag. Flestar bækur eru til sölu í Eymundsson en einnig eru hefti frá kennurum seld á skrifstofunni. Í fyrstu kennslustund fá nemendur námsáætlun fyrir önnina, upplýsingar um verkefnaskil, námsmat, kennslubækur og fleira.